Spurt og svarað
Q: Hvað er IRC.is?
A: IRC.is er vefsíða sem býður uppá BNC tengingar á IRCið fyrir Íslendinga.
Q: Hvað er BNC?
A: BNC er forrit sem er uppsett á netþjóni og er tengt allan sólarhringinn á IRC. Með því að vera með BNC helst nickið þitt á IRC’inu þó svo að þú slökkvir á tölvunni þinni.
Q: Hvaða IRC þjón er best að nota?
A: Á IRCNet er best að nota irc.simnet.is eða irc.hi.is.
Q: Þarf að borga fyrir þjónustuna fyrirfram?
A: Já, um leið og greiðsla fer fram fær notandinn afhenta þá þjónustu sem hann greiðir fyrir.
Q: Hvað gerist ef ég borga ekki?
A: Ef ekki er greitt fyrir þjónustuna innan 7 daga eftir að samningur rennur út er aðganginum eytt.
Q: Er hægt að fá endurgreitt?
A: Það er hægt að fá endurgreitt innan 10 daga frá byrjun samnings sé notandi ekki ánægður með þá þjónustu sem honum er veitt. Komi til einhvers niðurtíma sem ekki er hægt að rekja til ófyrirséðra aðstæðna fá notendur auka daga í staðinn.
Q: Fæ ég ábendingu um þegar aðgangurinn er að renna út?
A: Já, notendur fá sendan póst á það pósthólf sem þeir gáfu upp við skráningu um að endurnýjun sé á næsta leyti.
Q: Verður eitthvað meira í boði?
A: Það er í vinnslu. Komið með tillögur
